Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir - Bjart og vel skipulagt 4 herbergja endaraðhús með palli og grónum garði
Stutt gönguleið í miðbæ Selfoss, leikskóla og ýmsa aðra þjónustu
Lýsing eignar: Forstofa með fataskáp og náttúrstein á gólfi
Geymsla er innaf forstofu með hillum, þar er tengi fyrir þvottavél og góður gluggi með opnanlegu fagi
Eldhús með viðarréttingu, háf og nýju helluborði, náttúrusteinn á gólfi í eldhúsi. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými
Stofa er björt, með parketi á gólfi, útgengt er á pall úr stofu
Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum og parket á gólfum
Baðherbergi með náttúrstein á gólfi, sturtuklefa, innréttingu, upphengdu salerni. Einnig er innrétting fyrir þvottavél og þurkara, þar er einnig auka vaskur og vaskborð.
Gólfhiti er í húsinu
Rúmgóður pallur er við stofu og inngang sem hægt er að loka af
Garður er gróinn með fallegum trjáum og góðri grasflöt
Húsið er klætt með Steni klæðningu og á þaki er litað járn
Innkeyrsla er malarborin
Nánari upplýsingar veitirSigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099 [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.